Þegar farið er í ferðalag er það heitasta ósk flestra að komast sem fyrst á áfangastað og síðan á hótelið til að losa sig við farangurinn og koma sér fyrir. Hótelherbergið á helst að vera rólegt og fylla fólk öryggiskennd. En hótelherbergi eru mismunandi og meira að segja minnstu smáatriði geta truflað meira en maður reiknar með. Hávaði frá ganginum, ljós sem kemur undir hurðina eða áhyggjur af eigum sínum getur gert fólki erfitt fyrir að slaka á. En einfalt ráð getur breytt miklu hvað þetta varðar að sögn dagens.se.
Það þarf bara handklæði til að gera þetta. Það á að leggja það alveg upp við hurðina þannig að það nái yfir rifuna sem er oft undir hurðum á hótelum.
Með þessu dregur úr birtunni sem kemur frá ganginum og einnig úr hávaðanum. Hljóð á borð við fótatak, samtöl og hurðarskelli verða minna truflandi.
Fyrir þá sem vilja sofa á daginn, forðast truflanir á meðan þeir vinna eða vilja bara meiri ró í herberginu, þá er munurinn merkjanlegur um leið.
Þykkt handklæði virkar best því það þéttir rifuna betur. Rúllaðu handklæðinu jafnvel saman áður en þú leggur það við dyrnar. Það er best að það liggi eins nálægt og hægt er til að koma í veg fyrir að ljós og hljóð sleppi í gegn.
Með þessu er einnig hægt að skapa extra öryggiskennd. Handklæðið eitt og sér gerir herbergið ekki öruggara en það myndar smávegis hindrun við neðri hluta dyranna.