Pressan

Þau lifa lengur en flestir – Nú telja vísindamenn sig hafa fundið skýringuna

Mynd
Hver er lykillinn á bak við langlífi?

Vísindamennirnir sem standa að Leiden Longevity rannsókninni rannsökuðu hollenskar fjölskyldur þar sem langlífi hefur fylgt þeim kynslóðum saman.

Medical Daily skýrir frá þessu og segir að með því að gera erfðafræðilegar greiningar hafi þeir fundið mörg svæði í erfðamengi þeirra sem eru algengari en hjá öðru fólki.

212 systkinahópar voru rannsakaðir en fjölskyldur allra eiga langa sögu um langlífi. Rannsóknin hefur verið birt í bioRxiv.

Markmiðið með rannsókninni var að finna breytur sem geta veitt vernd gegn sjúkdómum og aldurstengdum vanda.

Fyrri rannsóknir á sömu fjölskyldum höfðu leitt í ljós að heilsufar þeirra var almennt betra en annarra fjölskyldna á sama aldri.