Pressan

Svona er hægt að minnka líkurnar á ristilkrabbameini

Mynd
Krabbameinsfrumur. Mynd úr safni.

Eftir því sem Lucas Spindler, læknir á Hopital Saint-Joseph í París, segir þá má rekja mörg tilfelli ristilkrabbameins til lífsstíls.

Doctissimo skýrir frá þessu og segir að Spindler bendi sérstaklega á reykingar, áfengisneyslu og óhollan mat sem áhættuþætti en einnig erfðir og aldur.

Hann sagði að einfaldur og hollur matur geti veitt líkamanum vörn og mælir meðal annars með að fólk borði meira af ávöxtum og grænmeti og minna af feitum mat, sykri og ofurunnum matvælum.

Hann sagði að slæmar matarvenjur geti valdið bólgum í líkamanum og breytt þarmaflórunni og það getur haft neikvæð áhrif á frumurnar.

Reykingar og áfengi geta síðan skaðað líkamann beint og aukið hættuna á sjúkdómum.