Pressan

Spánverjar herða reglurnar – Getur reynst ferðamönnum dýrt

Mynd
Mynd úr safni. Mynd:Wikimedia Commons

Það er betra að kynna sér spænsk umferðarlög áður en farið er í frí þar í landi. Nýlega voru ýmsar breytingar gerðar á umferðarlögunum þar í landi og taka þær gildi 1. október næstkomandi. Fólk á háar sektir yfir höfði sér ef það er staðið að brotum á lögunum og eru ferðamenn þar ekki undanskildir.

Dagbladet segir að meðal þess sem rétt sé að hafa í huga séu eftirfarandi atriði:

Fótgangandi – Ef maður ætlar að ganga yfir á gatnamótum, þar sem umferðarljós eru, þá þarf maður að bíða eftir að ljósið fyrir ökumenn sé orðið rautt áður en gengið er út á akbrautina. Áður mátti fara af stað þegar ljósið fyrir ökumenn var gult.

Ökumenn – Þegar ekið er framhjá hjólreiðafólki þurfa minnst 1,5 metrar að vera á milli bílsins og reiðhjólsins. Það á einnig að draga úr hraðanum þannig að ökuhraðinn sé að minnsta kosti 20 km/klst minni en leyfður hámarkshraði á akbrautinni. Það sama á við þegar ekið er framhjá bíl sem hefur lent í óhappi eða bilað. Á stórum vegum eiga ökumenn að mynda op fyrir neyðarbíla.

Á reiðhjóli – Nú er skylda að nota hjálm og það alltaf. Þetta gildir líka ef maður leigir hjól.

Á rafskútu – Lágmarksaldur til að aka rafskútu er 15 ár. Það er skylda að nota hjálm og endurskinsvesti ef það er myrkur. Það á líka alltaf að vera kveikt á framljósinu.