Pressan

Skakki turninn í Pisa lumar á skemmtilegu „leyndarmáli“

Mynd
Myndirnar sýna þetta vel.

Flestir kannast við Skakka turninn í Pisa enda varla hægt að gleyma turni sem hallast svona mikið eins og hann gerir. En fæstir vita að inni í honum er skemmtilegt „leyndarmál“.

Á myndinni, sem fylgir þessari grein, sjást marmaratröppurnar í turninum. Þrepin eru orðin ansi slitin eftir nokkur hundruð ára notkun en turninn var fullbyggður 1372 og síðan hafi milljónir manna farið upp og niður tröppurnar.

Þetta stöðuga álag hefur hægt og rólega slitið marmaranum og af því að turninn hallar, þá breytist slitmynstrið eftir því sem árin líða.

Gesti verða sífellt að stilla jafnvægi sitt af og þess vegna lenda fæturnir á mismunandi stöðum á þrepunum, allt eftir því hvar fólk er statt í tröppunum. Þetta gerir tröppurnar að heillandi dæmi um hvernig mörg hundruð ára ágangur fólks getur sést í dag.