Pressan

Santa Claus handtekinn í tálbeituaðgerð - Reyndi að mæla sér mót við barn

Mynd

Karlmaður á áttræðisaldri hefur verið handtekinn í New Orleans í tálbeituaðgerð. Málið hefur vakið nokkra athygli þar sem maðurinn er með hvítt hár, sítt hvítt skegg og heitir samkvæmt opinberum skrá Santa Claus, sem er enska heitið á jólasveininum. Þetta er þó ekki skírnarnafn mannsins sem hét George Quigley fyrir nafnabreytinguna.

Santa Claus taldi sig eiga í samskiptum við 15 ára dreng í gegnum netið en í reynd var hann að ræða við tálbeitu, rannsóknarlögreglumann sem þóttist vera á unglingsaldri. Santa Claus, sem í hjáverkum hefur tekið að sér hlutverk jólasveinsins og stillt sér upp á myndum með börnum, talaði við tálbeituna með klúrum hætti og sendi grófar myndir af sjálfum sér. Lýsti hann því með skýrum hætti að hafa löngun til þess að hafa kynmök við unglingsdreng. Þegar Santa Claus reyndi að gera draum sinn að veruleika hitti hann þó engan ungling heldur teymi af fullorðnum lögreglumönnum sem handtóku hann.

Um var að ræða lið í stærri aðgerðum sem beindust gegn aðilum sem vilja brjóta gegn ólögráða börnum og voru fleiri handteknir í aðgerðunum. Samkvæmt lögreglu er litið á alla sakborninga málsins sem hættulega börnum og samfélaginu.

„Við predikum daglega um það hvað börn eru berskjölduð á samfélagsmiðlum og í tölvuleikjum. Nú höfum við handtekið manneskju sem klæðir sig upp sem jólasveininn og býður foreldrum að setja börn í fang sitt svo hægt sé að taka myndir. Þetta er foreldrum og forsjáraðilum víti til varnaðar.“

Santa Claus situr nú í gæsluvarðhaldi og á yfir höfði sér ákæru og fangelsisdóm.