Pressan

Rússneska elítan er búin að fá nóg af stríði Pútíns – „Af hverju notum við ekki kjarnorkuvopn?“

Mynd
Sumir áhrifamenn vilja beita kjarnorkuvopnum í Úkraínu.

Hinir valdamiklu „haukar“ í Kreml eru enn sömu skoðunar og Vladímír Pútín um að það verði að ná yfirlýstum markmiðum með innrásinni í Úkraínu. En það eru samt sem áður komnir brestir í stuðning elítunnar við stríðsreksturinn.

Rússar hafa misst meðvindinn sem þeir höfðu á vígvellinum. Efnahagur landsins er í mikilli krísu og úkraínskir drónar og flugskeyti hæfa sífellt fleiri mikilvæg skotmörk langt inni í Rússlandi.

Draumur Pútíns um leifturstríð, sem átti að ljúka á nokkrum dögum, breyttist í martröð fyrir löngu og nú virðist rússneska elítan hafa misst þolinmæðina.

Áhrifamiklir bloggarar og áhrifavaldar krefjast þess að Pútín stigmagni stríðið mikið til að sigra í því eða setjist við samningaborðið með raunverulegt markmið um friðsamlega lausn á stríðinu.

Reuters og bandaríska hugveitan The Jamestown Foundation skýra frá þessu. Hugveitan bendir á að sérfræðingar hafi í vaxandi mæli tekið eftir „greinilegum klofningi“ hjá rússnesku elítunni og að hinir svokölluðu „haukar“ í Kreml öðlist sífellt meira vald yfir Pútín.

Mikil pressa

Igor Eydman, rússneskur félagsfræðingur, skrifaði á Facebook: „Pútín er undir mikilli pressu frá rússnesku elítunni sem vill binda enda á stríðið sem er komið í öngstræti“.

Eydman benti á að rússneski olígarkinn Roman Abramovich (fyrrum eigandi breska knattspyrnuliðsins Chelsea) heimsótti Kyiv í júní til að funda með Volodymyr Zelenskyy forseta Úkraínu.

Úkraínski þingmaðurinn Oleksei Hontarenko sagði að Abramovich hafi heimsótt Kiyv til að færa Zelenskyy skilaboð frá Pútín. Eydman hefur þó aðra sögu að segja og segir að með heimsókninni hafi rússneska elítan verið að reyna að sannfæra Pútín um að stöðva stríðið. Hafi Abramovich rætt við Zelenskyy sem fulltrúi meirihluta þeirra olígarka og annarra úr elítunni sem fara með völdin í Rússlandi.

Svipaða sögu var nýlega að finna í ofurþjóðernissinnaða rússneska miðlinum Tsargrad.tv. Undir fyrirsögninni „Elítan er reiðubúin til að láta Rússland gefast upp – Pútín beittur þrýstingi til að viðurkenna ósigur“ skrifaði miðillinn að árásir Úkraínumanna á rússneska olíuiðnaðinn komi illa við veski olígarkanna.

Kjarnorkuvopn

Tsargrad.tv er í eigu olígarkans Konstantin Malofeev sem er þekktur stuðningsmaður Pútíns og stríðsins í Úkraínu.

Hann tilheyrir þeim hluta elítunnar sem telur að Rússar eigi að stigmagna stríðsreksturinn til að ná upphaflega markmiði Pútíns um að koma leppstjórn Rússa til valda í Kyiv.

Malofeev bætti heldur í orðræðuna nýlega þegar hann hvatti til notkunar kjarnorkuvopna til að svara árásum Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í Moskvu.

„Hvað þarf að gerast áður en við byrjum að berjast af alvöru? Stríð þýðir sigur hvað sem það kostar. Úkraínumenn eru í stríði og þeir berjast með öllu sem þeir hafa. Af hverju notum við ekki kjarnorkuvopn, sem forfeður okkar bjuggu til, einmitt til þess að sigra?“  sagði hann að sögn Reuters.

Margir aðrir rússneskir bloggarar og áhrifavaldar styðja þetta sjónarmið og krefjast þess að rússneska stjórnin stigmagni stríðsreksturinn.

Á rússnesku bloggsíðunni Obsessed by War, sem er með rúmlega 650.000 fylgjendur, er hvatt til þess að svo miklu sprengjuregni verði beint að nokkrum af stærstu borgum Úkraínu að þær verði óbyggilegar.

Aðrir telja að það sé löngu tímabært að hætta öllum tilraunum til að finna friðsamlega lausn á stríðinu og beina þess í stað öllum kröftum í að gjöreyða Úkraínu sem landi.

En gagnrýni hinna áhrifamiklu bloggara og áhrifavalda hefur ekki haft nein áhrif á einvaldinn Pútín sem rígheldur í völdin og heldur andstæðingum sínum niðri.

The Jamestown Foundation telur að erfitt efnahagsástand og mótlæti í stríðinu þýði að Pútín neyðist í vaxandi mæli til að hlusta á valdaelítuna í Kreml, hina svokölluðu hauka, ef hann vill halda völdum og það vill hann.