Þýsk móðir afbar ekki að sonur hennar er samkynhneigður og þess vegna braust hún inn á hótelherbergi hans í Bæjaralandi þar sem sonurinn var með öðrum manni.
Frankfurter Allgemeine segir að konan hafi reynt að myrða soninn með skærum sem hún hafði meðferðis. Reyndi hún ítrekað að stinga hann með þeim.
23 ára sonur konunnar var með henni og tók þátt í árásinni og beitti berum hnefum og steikarpönnu sem hann hafði meðferðis.
Sem betur fer slapp yngri sonur frá þessu án þess að hljóta alvarlega áverka. Hann varð þó að leita læknisaðstoðar. Maðurinn, sem var með honum í herberginu, hlaut minniháttar áverka.
Árásin átti sér stað á hóteli í bænum Unterhaching í byrjun júní. Starfsmaður á hótelinu heyrði læti í herberginu og hringdi í lögregluna.
Móðirin og bróðirinn flúðu af vettvangi en voru handtekin skömmu síðar heima hjá sér.
Þau voru látin laus eftir yfirheyrslu en þegar ljóst var að ástæðan fyrir árásinni var sú staðreynd að sonurinn er samkynhneigður voru þau handtekin aftur og úrskurðuð í gæsluvarðhald. Ástæðan er að um hatursglæp er að ræða þar sem kynhneigð fórnarlambsins var kveikjan að henni.
Frankfurter Allgemeine segir að mæðginin séu búlgarskir ríkisborgarar.