Pressan

Nýjasta matartískan er sótt í biblíuna – Nú borðar fólk eins og Jesú

Mynd
Nú er vinsælt að borða eins og Jesú.

Brauð, fiskur, hunang og óunnin matvæli eru orðin miðpunktur nýrrar matartísku sem hefur sótt mjög í sig veðrið á samfélagsmiðlum.

Mörg hundruð þúsund manns fylgja nú svokölluðu „biblíumataræði“ sem gengur einfaldlega út á að borða mat eins og sagt er frá í biblíunni.

Þetta mataræði er í mikilli sókn á samfélagsmiðlunum TikTok, Instagram og Facebook þar sem áhrifavaldar eru iðnir við að deila uppskriftum, matseðlum og trúarlegum boðskap.

Einn þekktasti boðberi biblíumataræðisins er hin bandaríska Kayla Bundy sem er með rúmlega 500.000 fylgjendur. Hún hefur fylgt biblíumataræðinu í átta ár að sögn Oddity Central.

Aðdáendur mataræðisins telja að nútímamatur hafi fært fólk frá bæði heilbrigði og andlegum efnum.

Margir beina því sjónum sínum að einföldum hráefnum á borð við fisk, ólífuolíu, ávöxtum, hnetum og brauði og er innblásturinn sóttur í Nýja Testamentið.

Kayla Bundy nýtir sér auðvitað vinsældir sínar til að hagnast. Hún selur meðal annars stafrænar leiðbeiningar um„ofurfæði“ biblíunnar og býður fólki að leiðbeina því persónulega um mataræði og tekur „aðeins“ sem svarar til 100.000 krónum fyrir að veita þær ráðleggingar.