Þegar heilsunni fór að hraka ákvað hún að byrja að nota megrunarlyfið Wegovy til að léttast. En nokkurra mánaða notkun á Wegovy gjörbreytti lífi 28 ára danskrar konu algjörlega og það til hins verra.
Í umfjöllun TV2 um málið kemur fram að Maria Sommer-Kosac hafi byrjað að nota Wegovy í maí 2024 í samráði við lækninn sinn. Í byrjun upplifði hún þekktar aukaverkanir á borð við ógleði og uppköst og því hringdu viðvörunarbjöllurnar ekki strax.
En eftir nokkra mánuði bætti í aukaverkanirnar, uppköstin urðu tíðari, líkaminn varð sífellt meira veikburða og að lokum gat Maria ekki hreyft sig.
Hún var lögð inn á Háskólasjúkrahúsið í Árósum. Þaðan var hún síðan útskrifuð og látin fá lyf sem draga úr ógleði. En þau virkuðu bara í skamman tíma og ástand hennar versnaði hratt.
„Þegar mamma hjálpaði mér, hrundi ég niður og varð að skríða inn á klósett,“ sagði Mari í samtali við TV2.
Síðar kom í ljós að hin langvarandi uppköst höfðu orsakað vannæringu og alvarlegum B1-vítamín skorti. Maria var þá greind með Wernickes heilakvilla sem hafði valdið varanlegum heilaskaða, hugrænum vandamálum og skyntruflunum.
Maria notar nú göngugrind því fæturnir eiga það til að svíkja hana. Hún finnur einnig fyrir heilaþreytu sem gerir að verkum að getan til að hugsa og eiga í samskiptum hverfur skyndilega.