Pressan

Lögreglan fann óvænt stolið Picasso málverk þegar hún leitaði að fíkniefnum

Mynd
Höfuð Harlequin eftir Picasso.

Franska fíkniefnalögreglan gerði óvæntan fund nýlega þegar hún gerði húsleit í París. Þar fann hún stolið málverk eftir meistara Picasso. Það er metið á um 15 milljónir evra.

The Independent segir að lögreglan hafi gert húsleit heima hjá frænku grunaðs fíkniefnasala í Ormesson-sur-Marne hverfinu og þar hafi hún fundið málverkið.

37 ára karlmaður, sem starfar sem öryggisvörður hjá fyrirtæki, sem sérhæfir sig í að geyma verðmæta hluti, var handtekinn eftir að málverkið fannst.

Le Parisien segir að maðurinn hafi viðurkennt að hafa tekið málverkið úr geymslunni en það sagðist hann hafa gert til að sýna fram á veikleika í öryggismálum fyrirtækisins.

Hann hefur verið ákærður fyrir þjófnað og aðild að fíkniefnasölu en lögreglan fann 17 kg af kannabis og hönnunarfatnað að verðmæti 200.000 evra og 7.000 evrur í reiðufé þegar húsleit var gerð í nokkrum húsum í frönsku höfuðborginni.