Pressan

Leigusalinn afhöfðaði leigjandann og sundurhlutaði líkið

Mynd
Richard Dyson.
Richard Dyson.

Líkamsleifar Richard Dyson fundust í steypu á bóndabæ í Barnsley á Englandi síðasta sumar en hans hafði verið saknað síðan síðla árs 2019. Þegar líkamsleifarnar fundust var fljótlega ljóst að Dyson hafði verið myrtur.

Málið var tekið fyrir dóm nýlega og þar kom fram að Dyson, sem var 55 ára, hafi látist af völdum haglabyssuskots í kroppinn. Líkið var síðan sundurhlutað.

Leigusali hans, hinn 73 ára Christopher Wright, er ákærður fyrir morðið en hann er sagður vera „byssusjúkur“. Er hann sagður hafa skotið Dyson eftir að þeir höfðu deilt um stolnar byssur.

Þegar réttarmeinafræðingur kom fyrir dóminn sagði hann að lík Dyson hafi verið afhöfðað og að handleggir og fætur hafi verið sagaðir af og hugsanlega hafi hnífur einnig verið notaður við verkið.

Líkamsleifarnar fundust á botni tunnu en steypa hafi verið sett ofan á.

Réttarmeinafræðingurinn sagði að það hafi tekið marga daga að losa líkið úr steypunni því það hafi þurft að gera það mjög varlega til að valda eins litlu tjóni á líkamsleifunum og hægt var.

Sky News segir að réttarmeinafræðingurinn hafi fundið högl í rifjum Dyson.

Saksóknari telur að Dyson hafi verið myrtur þann 17. nóvember 2019 eftir að hann og Wright rifust vegna þess að Dyson hafði stolið nokkrum skotvopnum frá Wright og selt.