Pressan

Innmúraðir skýra frá sambandi Donald og Melania Trump – „Algjör fjandskapur“

Mynd
Donald Trump og Melania Trump. Mynd/Getty

Lífið í Hvíta húsinu hefur áratugum saman verið uppspretta orðróma, vangaveltna og aðdáunar. Almenningur sér oft þjóðarleiðtoga og fjölskyldur þeirra koma fram eftir góða skipulagningu. En reglulega heyrast sögur sem fjalla um eitthvað sem gerist bak við luktar dyr forsetabústaðarins.

Nú hafa nýjar upplýsingar um Donald og Melania Trump kynt undir umræðunni um hvernig samband forsetahjónanna sé eiginlega bak við tjöldin.

Irish Star segir að bandaríski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Michael Wolff standi á bak við þessar nýju upplýsingar. Hann hefur skrifað um Donald Trump og samherja hans árum saman og segir nú að bak við luktar dyr Hvíta hússins sé staðan allt önnur en sú mynd sem er dregin upp opinberlega.

Wolff segir að Melania hafi að mestu verið fjarverandi í síðustu kosningabaráttu og að það hafi valdið pirringi hjá samstarfsfólki forsetans.

„Meira að segja á stórum flokksfundum neitaði hún að standa við hlið hans. Ég held að við getum kallað þetta fjandskap,“ sagði Wolff.

Hann segir einnig að hjónin hafi sjaldan komið fram saman og að Melania hafi oft haldið sig fjarri því sem var í gangi í kosningabaráttunni.

Hvað varðar einkalíf Donald Trump segir Wolff að hann verði sífellt einangraðri og lifi ekki því fjölskyldulífi sem margir tengi við forseta Bandaríkjanna.

„Hann er maður sem nýtur ekki stuðnings, hlýju eða nærveru og er algjörlega aleinn,“ segir Wolff.

Hann segir að Trump eyði miklum tíma á Truth Social þar sem hann birtir oft færslur og skrifar athugasemdir við færslur.