Þau kallast „Zizians“. Þetta er hópur, eða söfnuður transfólks sem er veganistar, sem tengist mörgum morðum í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna.
Meðlimir hópsins eru flestir transfólk og þeir hafna algjörlega kjötneyslu og gervigreind og svo hafa þeir skilið eftir sig blóðslóð í mörgum ríkjum.
Jótlandspósturinn skýrir frá þessu og segir að nýlega hafi Michelle Zajko verið ákærð fyrir að hafa myrt foreldra sína á þrítugsafmælisdeginum sínum. Þetta gerðist á heimili þeirra í Pennsylvania á gamlárskvöld 2022. Þau voru skotin í höfuðið.
Zajko neitar sök en hún hefur lengi legið undir grun og lögreglan telur að hún hafi ekki verið ein að verki.
Zajko er talin vera meðlimur í fyrrgreindum hópi sem bandarískir fjölmiðlar hafa nefnt Zizians en nafnið vísar til leiðtoga hópsins, Jack „Ziz“ Lasota.
Auk morðanna á foreldrum Zajko, þá hafa félagar í hópnum verið tengdir við fjögur önnur morð.
Í nóvember 2022 réðust nokkrir meðlimir hópsins að sögn á leigusala sinn þegar hann reyndi að henda þeim út vegna ógreiddrar leigu. Leigusalinn var stunginn og skorinn 50 sinnum, missti annað augað. Í átökunum skaut hann einn meðlim hópsins til bana. Lögreglan flokkaði það sem sjálfsvörn.
Áður en leigusalinn náði að bera vitni í réttarhöldum, vegna málsins, var hann stunginn til bana af grímuklæddri manneskju.
Tveimur dögum síðar skutu tvær manneskjur, sem eru taldar tilheyra Zizian-hópnum, landamæravörðinn David Malan til bana nærri kanadísku landamærunum.
Malan skaut aðra manneskjuna til bana áður en hann féll sjálfur. Í kjölfar málsins gerði lögreglan mikla leit að meðlimum hópsins eftir að hún sló því föstu að morðvopnið hefði komið frá fyrrnefndri Michelle Zajko.
En allt byrjaði þetta annars staðar, það er að segja áður en blóðsúthellingarnar byrjuðu.
Stjórnleysi og „The Office“
Hinn meinti leiðtogi hópsins, fyrrnefnd Jack „Ziz“ Lasote hóf feril sinn sem bloggari á öðrum áratug aldarinnar. Þar skrifaði hún um tækni, heimspeki, vinsælustu dægurmálin, forritun og veganisma og stjórnleysi.
Þegar Ziz var ekki að blogga, skrifaði hún atvinnuumsóknir til tæknifyrirtækja og varð hluti af hinu svokallaða „rökhyggjusamfélagi“ í San Francisco. Þetta er hreyfing, byggð á heimspekilegum grunni, sem leggur áherslu á að leita að rökréttum sannleika í heiminum og gera út af við eigin hlutdrægni.
En svo kom að því að Ziz yfirgaf þetta samfélag og í kjölfarið urðu bloggfærslur hennar enn undarlegri en áður og fjandsamlegar í garð fyrrum skoðanasystkina hennar.
Hún bloggaði meðal annars um tvo helminga heilans sem geta að hennar sögn búið yfir tveimur aðskildum gildissettum, kynjum og „langar oft að drepa hvort annað“.
„Ég áttaði mig á að ég þoldi ekki lengur annað fólk. Ekki einu sinni rökhyggjufólk. Og að ég vildi lifa lífi mínu alein, leyna viðbrögðum mínum fyrir öllum sem gagnlegt var að eiga í samskiptum við. Ég hafði gefið hæfileika minn til að sjá fegurð upp á bátinn svo ég gæti séð illsku,“ skrifaði hún í langri bloggfærslu um sjónvarpsþáttaröðina „The Office“, gervigreind og önnur málefni að sögn BBC.
Hún flutti títt á milli staða með fólki sem var sama sinnis og hún.
Eitt sinn sviðsetti hún eigið andlát, líklega til að sleppa við að mæta fyrir dóm vegna mótmælaaðgerða.
En sprelllifandi Ziz var handtekin síðar þegar lögreglan gerði leit í hótelherbergi þegar hún leitaði að byssunni sem var notuð við morðin á foreldrum Zajko.
Ekki er vitað með vissu af hverju meðlimir hópsins hafi myrt fólk en ABC segir að meðlimir hópsins eigi það sameiginlegt að hafa starfað í tölvugeiranum og að þeir deili sömu öfgaskoðununum.
Ziz Lasota, Michelle Zajko og þriðji meðlimurinn voru handtekin í febrúar á síðasta ári og hafa verið ákærð fyrir innbrot, vörslu vopna og fíkniefna og fleiri brot.