Pressan

Hillary Clinton lætur Joe Biden heyra það – „Skelfileg mistök“

Mynd
Hillary Clinton gagnrýndi Joe Biden harðlega.

Hillary Clinton, fyrrum forsetafrú og utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var ekki að skafa utan af hlutunum nýlega varðandi Joe Biden og framboð hans til forseta 2024. Hún segir að Biden hafi gert út af við möguleika Demókrata og eyðilagt eigið orðspor.

Það er sjaldgæft að þungaviktarstjórnmálamenn beini spjótum sínum að samherjum sínum en það er einmitt það sem Hillary Clinton gerði þegar hún ræddi um forsetakosningarnar 2024.

Þegar Joe Biden ákvað að hætta við framboð sitt í júlí, í kjölfar hörmulegrar frammistöðu í sjónvarpskappræðum við Donald Trump, var skaðinn skeður að mati Clinton.

Kamala Harris, varaforseti Biden, tók við keflinu sem forsetaframbjóðandi en beið sársaukafullan ósigur.

Newsner segir að Clinton hafi rætt um þetta nýlega á fundi í New York. Hún sagði að Biden hafi stolið dýrmætum tíma, sem flokkurinn hafi haft mikla þörf fyrir, þegar hann neitaði að falla frá framboði sínu.

Í samtali við People skóf hún ekki utan af hlutunum og sagði meðal annars: „Hann gerði skelfileg mistök fyrir sjálfan sig, eftirmæli sitt og fyrir landið.“

Gagnrýni Clinton snýr að því að Biden hafði gefið í skyn að hann væri bara tímabundin lausn fyrir Demókrataflokkinn þar til yngri og frískari frambjóðandi tæki við af honum. Þess í stað hafi hann haldið fast í völdin, allt þar til það var of seint.