Pressan

Hefja leit að flugi MH370 á nýjan leik – Ráðgátan sem sérfræðingar skilja ekki

Mynd
MH370 hvarf með 239 manns um borð.

Stjórnvöld í Malasíu hafa framlengt samning sinn við leitarfyrirtækið Ocean Infinity um eitt ár og munu greiða fyrirtækinu 70 milljónir dollara ef það finnur brak flugs MH370 frá Malasia Airlines sem hvarf 2014.

Vélin, sem var af gerðinni Boeing 777, var á leið frá Kuala Lumpur í Malasíu til Peking í Kína þegar hún hvarf. 227 farþegar og 12 manna áhöfn var um borð. Hvarf vélarinnar er ein stærsta ráðgáta flugsögunnar.

Mikil leit hefur verið gerð að vélinni í gegnum árin en án árangurs. Ocean Infinity leitaði að vélinni til 2018. Á síðasta ári gerði fyrirtækið nýjan samning við stjórnvöld í Malasíu um leit að vélinni á 15.000 ferkílómetra svæði í Indlandshafi. Enn á eftir að leita á um helmingi þess svæðis og er framlengingu samningsins ætlað að gera fyrirtækinu kleift að ljúka leitinni á þeim helmingi.

Hvað kom fyrir flug MH370?

Síðasta lífsmarkið sem barst frá flugvélinni var 40 mínútum eftir flugtak frá Kuala Lumpur. Zaharie Ahmad Shah, flugstjóri, sagði þá: „Góða nótt, Malasía þrír sjö núll“ þegar vélinni var flogið inn í víetnamska lofthelgi.

Skömmu síðar var slökkt á sendi vélarinnar og þar með varð mjög erfitt að rekja slóð hennar.

Herratsjá sýndi að flugvélin breytti um stefnu og var flogið norður yfir Malasíu og Penang eyju og síðan beygt í átt að odda indónesísku eyjunnar Súmötru. Síðan var stefnan tekin í suður og allt samband rofnaði.

Greining á veikum merkjum frá vélinni benda til að hún hafi flogið í sex klukkustundir til viðbótar áður en hún varð eldsneytislaus og hrapaði í Indlandshaf.

Í skýrslu, sem var gerð á vegum malasískra stjórnvalda 2017, var ekki útilokað að stefnu vélarinnar hafi vísvitandi verið breytt.

Rúmlega 30 hlutir, sem eru taldir vera úr vélinni, hafa fundist við strendur Afríku og á eyjum í Indlandshafi. Aðeins hefur verið hægt að staðfesta að þrír þeirra séu úr vélinni.