Pressan

Hafði þráð mágkonu sína í tæpan áratug - Lét svo til skarar skríða með hrottalegum hætti

Mynd

Tónlistarkennari á Long Island ákvað að láta til skarar skríða nýlega þegar eiginkona hans var að heiman, en hann hafði þráð mágkonu sína í tæpan áratug.

Joseph Horner er 27 ára og þegar eiginkona hans brá sér af bæ til að gæsa vinkonu ákvað hann að hafa samband við mágkonu sína, hina 25 ára gömlu Victoriu Castle, undir því yfirskini að hann þyrfti að færa píanó. Victoria féllst á að hjálpa honum en þau bjuggu í sama húsi. En það var ekkert píanó sem þurfti að færa. Þess í stað kom Joseph aftan að mágkonu sinni og yfirbugaði hana með hálstaki. Þegar hún missti meðvitund færði hann hana úr fötunum og nauðgaði henni. Hún rankaði þó ekki við sér aftur og hafði hann þá sjálfur samband við Neyðarlínuna. Victoria var flutt á sjúkrahús en var úrskurðuð látin skömmu eftir komuna þangað. 

Victoria var meðvitundarlaus en enn með lífsmörk og var flutt á sjúkrahús þar sem hún var svo úrskurðuð látin skömmu síðar. Joseph var handtekinn og ákærður fyrir morð.

Að sögn fjölmiðla hafði Joseph þráð mágkonu sína árum saman, eða allt frá árinu 2017. Victoria virðist þó ekki hafa haft hugmynd um að mágur hennar bæri slíkan hug til hennar, enda giftist hann síðar systur hennar. Þegar Joseph og systirin gengu í hjónaband fyrir þremur árum skrifaði Victoria fallega kveðju til hjónanna á Facebook:

„Systir mín, mín allra besta, félagi minn í óreiðunni er nú gift einni dásamlegustu manneskju heims. Ég elska ykkur bæði endalaust.“

Joseph var tónlistarkennari við grunnskóla en er nú kominn í launalaust leyfi frá störfum. Skólinn segir í yfirlýsingu að ásakanirnar á hendur tónlistarkennaranum komi sem þruma úr heiðskíru lofti enda hafi Joseph verið vel liðinn í starfi meðal bæði nemenda og samstarfsmanna. Victoria var efnilegur doktorsnemi og að sögn aðstandenda beið hennar björt framtíð.