Árið 2003 giftist hin franska Sylvie Yasmina pakistönskum manni í Ástralíu. Þau fluttu síðan til Pakistan með börn sína árið 2014.
Nýlega var Sylvie, sem er 54 ára, og fimm börnum hennar bjargað þar sem þeim var haldið föngnum í norðvesturhluta Pakistan. Það var eiginmaður hennar og barnsfaðir sem hélt þeim föngnum og beitti Sylvie miklu ofbeldi á þeim 12 árum sem hann hélt henni fanginni.
Lögreglan handtók manninn þegar hún réðst til inngöngu á heimili fjölskyldunnar í bænum Bara. Það gerði hún eftir að einum syni hjónanna tókst að sleppa úr húsinu og láta lögregluna vita af hvað var í gangi þar.
Lögreglan sagði að Sylvie og börnin hefðu fundist í litlu og niðurníddu herbergi. Mörg þeirra hafi verið með greinilega líkamlega áverka.
Sylvie og börnin hafa óskað eftir að fara til Frakklands og hafa pakistönsk yfirvöld tilkynnt frönskum stjórnvöldum um það.