Pressan

Frænkan segir að þetta sé það sem Donald Trump hræðist mest

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Það leikur ekki allt í lyndi í fjölskyldu Donald Trump. Í nýju viðtali skefur frænka hans ekki utan af því og skýrir frá stærsta veikleika forsetans og sáir miklum efa um hvort andlegt ástand hans sé gott.

Frænkan, Mary Trump, hefur áður gagnrýnt Trump og líklega er hún ekki á jólakortalista hans. Hún ræddi við blaðamanninn Steven Beschloss, skömmu eftir að fundi G7 ríkjanna lauk í júní, og dró upp mynd af manni sem berst við lélega heilsu og hræðslu við að missa andlitið (ekki þó í bókstaflegri merkingu).

LADbible skýrir frá þessu og segir að Mary hafi lýst frænda sínum sem tómri skel og þrátt fyrir að hann geti stundum virst bráðgreindur í örskamma stund að hennar sögn, þá liggi leiðin beint niður hjá honum. Hún sagði að forsetinn glími við bæði líkamlega og andlega hrörnun.

Hún sagði að það sem Trump óttast mest sé að vera gerður að athlægi á opinberum vettvangi, það myndi koma illa við risastórt egó hans sem er mjög brothætt að hennar sögn.

Hún sagði að mestu hættuna fyrir æru Trump sé ekki að finna hjá pólitískum andstæðingum hans: „Vandi hans er að enginn niðurlægir Donald betur en Donald sjálfur.“

Ummæli hennar fóru ekki framhjá starfsfólki Hvíta hússins og beið Steven Cheung, samskiptafulltrúi, ekki boðanna með að svara Mary og sagði ummæli hennar illgjarna lygi sem hafi aðeins átt að beina athyglinni að henni sjálfri.