Margir eiga erfitt með svefn öðru hvoru og enn aðrir mjög oft en geta ekki skýrt hvað veldur. Meira að segja þegar upplagðar ástæður á borð við stress og skjánotkun hafa verið útilokaðar geta svefngæðin verið skert.
Eftir því sem læknadeild Harvard háskólans segir þá getur ástæðuna stundum verið að finna í hvernig svefnherbergið er innréttað. Lrytas.it skýrir frá þessu.
Léleg svefngæði eru oft tengd við lífsstíl en eftir því sem segir í umfjöllun tvnet.lv benda sérfræðingar einnig á umhverfisáhrif sem hugsanlega skýringu.
Eitt af því sem margir hafa í svefnherberginu er spegill eða speglar. Þeir geta haft neikvæð áhrif á svefninn ef þeir eru illa staðsettir í herberginu.
Þetta snýst um þau sjónrænu áhrif sem spegillinn veldur.
Heilinn er þannig þróaður að hann skráir stöðugt allar hreyfingar og birtu, meira að segja þegar við sofum.
Speglar geta endurkastað smá breytingum í umhverfinu, til dæmis ljósi frá umferð eða hreyfingu utanhúss. Þetta getur valdið sjónrænum óróa sem veldur því að heilinn er örlítið virkur. Það hefur þær afleiðingar að svefninn verður grynnri og líkaminn nær ekki að hlaða batteríin eins vel.
Sérfræðingar segja að á einfaldan hátt sé hægt að gera breytingar til batnaðar.
Til dæmis með því að forðast að hafa spegla beint yfir rúminu. Breiða yfir þá ef ekki er hægt að færa þá. Með því að skapa dimmt, svalt og rólegt svefnumhverfi og með því að takmarka ljós og truflanir fyrir háttatímann.