Pressan

Breskur túristi á Mallorca gerir allt vitlaust – Beitir kláðadufti í sólbekkjastríði

Mynd
Frá Mallorca.

Stríð um sólbekki í hótelgörðum í sólarlöndum eru útbreitt vandamál og umræðuefni. Víða hafa stjórnendur hótela reynt að grípa til aðgerða til að stemma stigu við þeim hvimleiða sið margra að taka frá sólbekki sem þau eru ekki að nota. 

Sjá einnig: Sólbekkjadrama í ferðamannaparadísinni – Nota dróna

31 árs gamall breskur ferðamaður á Mallorca, Tom Caunce, frá Southport, hefur vakið miklar deilur á netinu eftir að hann birti TikTok myndband af hrekk sem hann beitir gegn sólbekkja„frekjum“. 

Tom var orðinn langþreyttur á að sjá sömu hótelgestina hvað eftir annað taka frá bestu bekkina við sundlaugina með því að skilja handklæðin sín eftir á þeim klukkutímum saman. 

Í stað þess að kvarta til hótelstjórans tók hann málin í sínar hendur og stráði kláðadufti á handklæðin. Eigendur þeirra eiga því ekki von á góðu þegar þeim loksins þóknast að nota sólbekkinn sem þau hafa tekið frá yfir heilan eða hálfan dag. 

Í netumræðum lýsa margir yfir ánægju með þetta framtak en öðrum finnst allt of langt gengið. 

Sjá nánar á Canarian Weekly