Margir, sem eru með sykursýki-2, fá lyf til að vernda nýrun og halda blóðþrýstingnum niðri. Oft er mörgum lyfjum ávísað á sjúklingana til að lágmarka líkurnar á fylgikvillum að sögn HealhDay.
Í nýrri rannsókn, sem var kynnt á European Renal Association ráðstefnunni í Glasgow, var rannsakað hvaða áhrif mismunandi meðferðir hafa á sjúklinga með sykursýkisnýrnasjúkdóm.
Rannsóknin byggir á heilsufarsgögnum rúmlega 31.000 fullorðinna, með sykursýki-2, á árunum 2016 til 2021.
Allir þátttakendurnir fengu tvær lyfjategundir sem eru venjulega notaðar til að vernda starfsemi nýrnanna. Tæplega fjórir af hverjum tíu fengu einnig blóðþrýstingslyf sem heitir DCCB. Það er oft notað sem viðbótarlyf þegar lækka þarf blóðþrýstinginn meira.
Vísindamennirnir fylgdust með sjúklingunum í þrjú ár og báru saman hvernig heilsufar þeirra þróaðist.
Vísindamenn telja að lyfið hafi hugsanlega áhrif á blóðgegnumstreymið í nýrunum á þann hátt að það auki álagið á líffærin. En þetta hefur þó ekki enn verið sannað.
Vísindamennirnir leggja áherslu á að rannsóknin sýni aðeins tengsl en sanni ekki að lyfið sé orsökin fyrir þessu. Þeir mæla því með að fleiri rannsóknir verði gerðar áður en meðferðarleiðbeiningum verði breytt.