Flestir ökumenn hafa eflaust upplifað að eldsneytisljósið lýsir og þar með er ljóst að lítið er eftir í tanknum en samt sem áður er ekið aðeins lengra.
Þetta virðist kannski ekki vera svo alvarlegt en sérfræðingar segja að til langs tíma litið geti þetta reynst dýrkeypt.
Það getur auðvitað verið freistandi að nota hvern einasta bensíndropa og margir bílar komast einnig fleiri kílómetra en framleiðandinn gefur upp. En það breytir því ekki að hættan eykst þegar bensínmagnið er orðið lítið.
Sérfræðingar segja að vandamál komi oft upp áður en tankurinn tæmist alveg. Kerfi bílsins verður viðkvæmara og meira að segja smá sveiflur geta haft áhrif á starfsemi bílsins eftir því sem segir í umfjöllun Carup.
Þegar lítið bensín er eftir, getur streymið til vélarinnar orðið ójafnt. Það getur valdið því að bensínið brennur ekki rétt. Í sumum tilfellum geta leifar endað í útblásturskerfinu og þar með skemmt ákveðna hluta vélarinnar.
Sú staða getur einnig komið upp að loft endar inni í eldsneytiskerfinu og það getur haft áhrif á vélina og í versta falli valdið vanda við að ræsa bílinn á nýjan leik.
Sérfræðingar benda á að það sé rétt að fylla bensíntankinn þegar bensín er keypt og að það eigi að fylla hann í síðasta lagi þegar fjórðungur er eftir í tanknum. Þetta tryggir stöðugleika og dregur úr líkunum á tjóni.
Ákvörðunin um að bíða með að taka bensín getur virst skipta litlu máli en í raun getur hún á endanum orðið til þess að fara þarf með bílinn á verkstæði með til heyrandi kostnaði.