Pressan

Barn undir 12 ára aldri fékk aðstoð við að deyja í Hollandi

Mynd
Frá Hollandi.

Barn yngra en 12 ára fékk nýlega aðstoð við að deyja í Hollandi en þar er heimilt að veita fólki aðstoð við að deyja að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Þetta var í fyrsta sinn, síðan lögunum um dánaraðstoð var breytt fyrir tveimur árum, sem barn yngra en 12 ára fékk aðstoð við að deyja.

The Telegraph skýrir frá þessu og segir að engar upplýsingar hafi verið veittar um aldur barnsins, kyn, heilsufar eða annað.

Sophie Hermans, heilbrigðisráðherra, sagði að málið hafi verið tilkynnt til óháðrar nefndar sem hefur eftirlit með dánaraðstoð við börn.

Skýrt var frá máli barnsins þegar ráðherrann kynnti skýrslu fyrrnefndrar eftirlitsnefndar fyrir þingi landsins. Sagði ráðherrann þá að barnið hafi fengið þessa aðstoð í lok síðasta árs.

Málið er nú til skoðunar hjá ákæruvaldinu sem fer alltaf yfir mál tengd dánaraðstoð. Munu saksóknarar skera úr um hvort læknar hafi fylgt strangri löggjöf landsins á þessu sviði.