Pressan

Baráttan um Krím getur ráðið hvernig Úkraínustríðið endar og örlögum Pútíns

Mynd
Rússneskir hermenn á Krímskaga. Mynd:Getty

Þegar Rússar hernámu Krím 2014 jókst hraðinn á ofbeldisfullri landstækkunarherferð Vladímír Pútíns. En ástandið á skaganum er nú mjög slæmt fyrir Rússa því Úkraínumenn hafa látið flugskeytum og drónum rigna yfir hann síðustu mánuði og gera Rússum lífið mjög erfitt þar. Þetta getur ógnað heimsveldisdraumum Pútíns.

Jótlandspósturinn bendir á að innlimum Krím hafi verið pólitískur sigur á innanlandsvettvangi fyrir Pútín og vinsældir hans hafi náð nýjum hæðum á grundvelli þjóðernishyggju rússnesku þjóðarinnar.

Krím varð einnig táknmyndin um að Pútín og nánustu samstarfsmenn hans gætu látið drauma sína um að stækka Rússland rætast. Fljótlega hófst stríð í austurhluta Úkraínu þar sem Rússar studdu við svokallaða aðskilnaðarsinna. Í febrúar 2022 réðust Rússar síðan inn í Úkraínu og hófst þá stærsta stríðið í Evrópu í um 80 ár.

Staðsetning Krím er mikilvæg því skaginn nær út í Svartahaf og það að hafa stjórnina á skaganum er mikilvægt gagnvart löndum í Suðaustur-Evrópu og sendir einnig sterk skilaboð um að Rússland sé stórveldi sem vilji gjarnan þenjast út í vesturátt.

En nú, rúmum 12 árum eftir innlimunina, standa Kremlverjar frammi fyrir erfiðustu stöðunni til þessa hvað varðar að halda yfirráðum yfir skaganum en þar búa um 2,5 milljónir manna.

Krím er mjög mikilvægur hluti í þeirri stóru áætlun sem Kremlverjar eru með. Skaginn er ekki bara mikilvægur efnahagslega og hernaðarlega, hann er einnig mjög mikilvægur í þeirri þjóðernishyggju sem Pútín byggir stjórn sína á.

Ef Úkraínu tekst að gera út af við efnahagslífið á Krímskaga verður það gríðarlegt áfall fyrir Pútín, bæði efnahagslega og móralskt séð.

Það mun einnig verða til þess að Pútín mun standa frammi fyrir stórri pólitískri áskorun. Hann getur skýrt hugsanlegt tap í austanverðri og sunnanverðri Úkraínu því það hefur varla mjög afgerandi þýðingu fyrir flesta Rússa.

En það gegnir öðru máli með Krím. Pútín hefur að vissu leyti tengt eigin örlög við Krím og hann getur líklega ekki lifað af ef Rússar missa Krím í hendur Úkraínu á nýjan leik.