Alþjóðlegt glæpagengi sem meðal annars starfaði á Tenerife South flugvellinum hefur verið upprætt. Ellefu manns hafa verið handtekin, grunuð um samtals 24 brot, þar af skipulega glæpastarfsemi, ítrekaðan þjónað, smygl, skjalafals og peningaþvætti.
Canarian Weekly greinir frá þessu.
Gengið stundaði skipulagðan þjófnað úr fríhafnarverslunum á flugvöllunum í Tenerife, Mallorca, Barcelona, Valencia og víðar. Aðallega var stolið tóbaki og dýrum ilmvötnum úr verslunum.
Lögregla segir brotafólkið hafa starfað á háþróaðan hátt og beitt kunnáttusamlegum brögðum og skipt með sér verkum, þannig að sumir stóðu á verði, aðrir sáu um að trufla athygli starfsfólks, og enn aðrir um að stinga inn á sig vörum og fara með þær af flugvellinum.
Fólkið var handtekið á Spáni og Bretlandi en sumir meðlimir gengisins eru einnig frá Rúmeniu.