Pressan

Algjör niðurlæging fyrir Donald Trump – Nú vill engin nota það

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti.

Það var sú tíð að bandarískar fæðingardeildir voru fullar af litlum drengjum sem fengu nafnið Donald. Stórveldistími nafnins var 1934 þegar 30.400 drengir voru skírðir því. Allt fram til 1990 var nafnið alltaf meðal 100 vinsælustu drengjanafnanna í Bandaríkjunum.

En nú er staðan allt önnur. Samkvæmt nýjum tölum frá bandarískum stjórnvöldum þá er ekki annað að sjá en nafnið sé mjög óvinsælt og að flestir forðist eins og heitan eldinn að gefa drengjum þetta nafn í dag. Irish Star skýrir frá þessu.

Líklegt má telja að ástæðan fyrir litlum vinsældum nafnsins í dag sé hinn umdeildi Donald Trump sem situr á húsbóndastólnum í Hvíta húsinu þessi misserin.

Á síðasta ári fengu innan við 400 drengir nafnið Donald og er það nú í neðsta sætinu þegar vinsældir bandarískra drengjanafna eru skoðaðar.

Mirror US kafaði ofan í tölurnar og segir að það sé erfitt að líta fram hjá tengslum minnkandi vinsælda nafnsins og innreiðar Donald Trump í sviðsljósið. Strax á tíunda áratugnum, þegar Trump fór að vera áberandi í slúðurmiðlum, byrjuðu vinsældir nafnsins að dala.

Þegar Trump byrjaði að sjást reglulega á sjónvarpsskjánum 2004 í þáttunum „The Apprentice“ var nafnið í 263. sætinu yfir vinsælustu drengjanöfnin og hélt áfram að fara niður á við næstu árin. 2013 var Trump tekin í Frægðarhöll glímusambandsins, WWE, og hrapaði nafnið þá niður í 415. sæti vinsældalistans. Þegar hann tók við forsetaembættinu 2016, fór nafnið niður í 489. sæti. Nú er það í 690. sæti, sem er neðsta sætið.

Meira að segja í sterkustu vígjum forsetans eru foreldrar lítt spenntir fyrir að skíra syni sína Donald. Má þar nefna að 2017, á öðru ári Trump í Hvíta húsinu, var aðeins 21 drengur skírður Donald í Flórída.