Pressan

Aflífa mýtuna um „jójóþyngd“ – Maður á ekki að halda aftur af sér

Mynd
Mynd/Pexels

Það fylgir því ekki eins mikil heilsufarsáhætta og talið var að þyngdin fari upp og niður, jójóþyngd. Einn mánuðinn segir vigtin eitt og þann næsta segir hún allt annað.

Margir kannast við að þyngdin fer upp og niður en lengi hefur verið talið að það væri slæmt fyrir heilsuna að glíma við þannig jójóþyngd.

En kannski þarf ekki að hafa svo miklar áhyggjur þótt tölurnar á baðvoginni breytist reglulega.

Niðurstaða rannsókna vísindamanna við Kaupmannahafnarháskóla sýnir að það er engin traustur grundvöllur fyrir að telja „jójóþyngd“ hættulegri en að vera viðvarandi í ofþyngd.

Faidon Magkos, prófessor við Íþrótta- og næringafræðideild Kaupmannahafnarháskóla, segir í fréttatilkynningu að margir reyni ekki að léttast því þeir óttist að hugsanleg þyngdaraukning í kjölfarið geti skaðað líkamann eða efnaskiptin. Hann sagði að rannsóknin hafi leitt í ljós að þessar áhyggjur sé að mestu óþarfar, í flestum tilfellum vegi ávinningurinn af þyngdartapi meira en sú hugsanlega áhætta að þyngdin aukist síðar.

Rannsóknin leiddi í ljós að það er alvarleiki offitunnar en ekki sveiflur á þyngdinni sem virðast vera aðaldrifkrafturinn á bak hættuna á heilbrigðisvanda.