Pressan

Varpa ljósi á líf Mariusar Høiby í fangelsi - Fær að horfa á HM í klefanum

Mynd
Marius Borg Høiby. Mynd/Getty

Marius Borg Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar Mette-Marit, dvelur nú í Ila-fangelsinu nærri Osló þar sem hann hefur aðgang að góðum hádegismat og líkamsræktarsal auk þess að hann getur fylgst með HM í knattspyrnu í klefanum. 

Høiby var í fjögurra ára fangelsi í júní eftir að dómstóll í Osló sakfelldi hann fyrir tvær nauðganir auk fleiri brota. Hinn 29 ára gamli Høiby var einnig fundinn sekur um heimilisofbeldi gegn fyrrverandi kærustu, hótanir og umferðarlagabrot. Hann var hins vegar sýknaður af tveimur öðrum nauðgunarákærum. Hann er ekki byrjaður að afplána dóminn heldur er hann í haldi á meðan máli hans er áfrýjað. 

Mynd
Ila-fangelsið hjá Osló. Í síðari heimstyrjöld ráku nasistar þar fangabúðirnar Grini. 

Norski miðillinn Dagbladet fjallar um aðstæðurnar í Ila-fangelsinu en þar eru nú í haldi 125 fangar auk 230 starfsmanna. Gefur það góða innsýn í líf hans í dag. Høiby starfaði við að gera við mótorhjól áður en hann var dæmdur og rak sitt eigið mótorhjólafyrirtæki. Í fangelsinu er boðið upp á málmsmiðju og málningarsmiðju, þá geta fangarnir einnig fengist við bifvélavirkjun og jafnvel útskrifast með réttindi. 

Þá geta þeir notað íþróttasal, líkamsræktarstöð og bókasafn. Í hádeginu er boðið upp á ýmsa rétti, allt frá tælenskum mat til pastarétta. Allir fangar eru með sjónvarp í klefanum sínum þar sem þeir mega fylgjast með HM í knattspyrnu. 

Rætt er við Johan Lothe sem hefur starfað með föngum við að aðlagast lífi að lokinni afplánun. „Það er ýmis þjónusta í boði. En Ila er öruggt fangelsi þar sem þú ert í samneyti við fanga sem hafa framið alvarlega glæpi,“ sagði Lothe. Þá er mikil mannekla í fangelsum í Noregi.

Høiby er sonur Mette-Marit úr fyrra sambandi áður en hún giftist Hákoni krónprins árið 2001. Hann hefur engan konunglegan titil og gegnir engu opinberu hlutverki innan norsku konungsfjölskyldunnar.

Dómurinn fellur á erfiðum tíma fyrir móður hans, krónprinsessuna Mette-Marit, sem glímir við alvarlegan lungnasjúkdóm.