Pressan

Umdeildur MAGA-liði skellti sér til Íslands með viðhaldinu og er harðlega gagnrýndur

Mynd
Mynd/Getty

Ken Paxton, ríkissaksóknari Texas, er mættur til Íslands með viðhaldi sínu. Frá þessu greina erlendir fréttamiðlar, en Paxton er mikill MAGA-liði og er nú að bjóða sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings fyrir hönd Repúblikanaflokksins.

Viðhaldið er kristinn áhrifavaldur að nafni Tracy Duhon, en hún og Paxon sáust fara um borð í flug á leið til Reykjavíkur á flugvellinum Dulles í Washington á laugardaginn. Eins náðist myndskeið af MAGA-liðanum eftir að hann lenti hér á klakanum þar sem hann sést meðal annars nudda axlirnar á Duhon.

Rétt er að geta þess að Paxon er skilinn að borði og sæng, en Duhon er engu að síður kölluð hér viðhald þar sem hún er ástæða þess að eiginkona ríkissaksóknarans, þingmaðurinn Angela Paxton, fór fram á skilnað enda líklegast komin með alveg nóg af manni sínum þar sem þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann hefur verið sakaður um hjúskaparbrot.

Talsmaður demókrataflokksins í Texas hefur fordæmt Paxon fyrir Íslandsferðina með vísan til þess að Ísland sé einn dýrasti áfangastaður heimsins. Það skjóti skökku við að sækja slíkan stað heim á meðan sumir Bandaríkjamenn lifa undir hungurmörkum á meðan þjóðin fagnar 250 ára afmæli sínu.

„Enn og aftur hefur hinn spillti Ken Paxton sett sjálfan sig í fyrsta sætið og látið Bandaríkin mæta afgangi,“ sagði talsmaðurinn, Ryan Martin, í yfirlýsingu til San Antonio Current.

„Paxon ætti þó ekki að hafa of miklar áhyggjur – hann mun hafa allan tímann í heiminum fyrir lúxusferðir með viðhaldinu eftir að hann tapar kosningunum í nóvember.“

Paxon hefur verið viðriðinn þó nokkur hneykslismál undanfarið og hefur meðal annars verið sakaður um mútur, brot í opinberu starfi, að hindra framgang réttvísinnar, að misnota traust almennings og önnur misferli. Kallað var eftir því að hann yrði settur úr embætti en var hann sýknaður í kjölfar rannsóknar.

DailyMail greindi fyrst frá Íslandsferðinni en miðillinn var eins fyrstur í fyrra til að fjalla um framhjáhald Paxtons. Í frétt miðilsins nú segir að Paxton hafi skellt sér til Íslands í stað þess að huga að kosningunum í nóvember, þrátt fyrir að skoðanakannanir sýni nauman mun á honum og mótherjanum, demókratanum James Talarico.