Tveir hafa verið handteknir vegna andláts ungs manns í verslunarmiðstöð í Mogán, í suðurhluta Gran Canaria.
Maðurinn lést á sunnudag og rannsakaði lögregla andlát hans fyrst sem slys vegna falls.
Rannsóknin tók hins vegar nýja stefnu og hefur leitt til handtöku tveggja manna. Annar var handtekinn á Las Americas svæðinu á suðurhluta Tenerife en hinn var handtekinn í Gran Canaria.
Guardia Civil lögreglan hefur ekki gefið nákvæmari upplýsingar um málið og liggur ekki fyrir hvernig maðurinn dó né nákvæmlega hvaða brot hinir handteknu eru taldir hafa framið í tengslum við andlátið. Rannsókn málsins heldur áfram og lögreglan viðar að sér gögnum til að geta dregið upp mynd af atburðarásinni.
Sjá nánar á Canarian Weekly.