Margir kannast við þann sið að taka frá sólbekk í sundlaugagörðum hótela með því að leggja á hann handklæði. Sumstaðar kveður svo rammt að þessu að allir sólbekkirnir eru fráteknir jafnvel þegar morgunhanar fara á stjá og ætla að sóla sig við laugina.
Stjórnendur hins vinsæla hótels Bitacora, sem staðsett er á Amerísku ströndinni á Tenerife, hafa nú gripið til aðgerða til að uppræta þetta vandamál. Öryggisverðir standa þar vörð á morgnana og gæta þess að allir fari út í sundlaugargarðinn á sama tíma.
Með þessu vakir fyrir hótelinu að draga úr deilum gesta um sólbekki og fæla gesti frá því að taka frá sólbekki sem þeir eru ekki að nota í það sinnið.
Nánar er fjallað um málið á Canarian Weekly og þar má sjá kostulegt myndband af því þegar gestum er hleypt inn á svæðið. Sjá nánar hér.