Pressan

Réttlætisriddari eftirlýstur í Mexíkó fyrir að elta uppi meinta þjófa og binda þá við ljósastaura

Mynd

Lögreglan í Mexíkó lýsir nú eftir réttlætisriddara sem undanfarið hefur lagt stund á eins konar borgaralegar „handtökur“. Hefur riddari þessi fengið viðurnefnið Batman Lagos de Moreno í fjölmiðlum.

Svo virðist sem þessi óþekkti aðili, eða aðilar, hafi fengið nóg af þjófum sem hafa herjað á svæðið og hafa nú minnst fimm meintir þjófar fundist fastir við ljósastaura síðustu vikur. Þjófarnir voru rækilega festir við ljósastaurana með sterku límbandi og eins hafði réttlætisriddarinn krotað framan í þá veiðihár, gerviyfirvaraskegg og skrifað þar spænska orðið yfir þjóf eða ratero. Sumir þeirra höfðu augljóslega orðið fyrir ofbeldi en á myndum má sjá suma meintu þjófana með blóðug andlit.

Af myndum að ráða munu þolendur riddarans hafa stolið bifhjólum en eins lét réttlætisriddarinn fylgja útlistun á meintum glæpum á stórum miða sem hann hengdi á ljósastaurana fyrir ofan meintu þjófana.

Meintu þjófunum var síðar bjargað úr prísundinni og hafa nú stöðu þolenda í rannsókn lögreglu sem leitar réttlætisriddarans, enda höfðu þjófarnir ekki verið sakfelldir fyrir nokkuð þegar þessi Batman Lagos de Moreno ákvað að frelsissvipta þá og refsa.

Myndir af meintu þjófunum hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum þar sem margir halda með réttlætisriddaranum og hvetja hann til dáða. Að sögn mexíkóskra miðla fékk réttlætisriddarinn nóg af seinagangi lögreglu og ákvað að taka lögin í sínar eigin hendur.

Independent greinir frá.