Maður sem kveðst hafa heimsins minnsta typpi hefur nú fengið boð um fría aðstoð við vandamálinu. Líkt og fjallað var um í síðustu viku hefur hinn 38 ára gamli Michael Philips frá Norður-Karólínu í Bandaríkjunum stigið fram með yfirlýsingu um að hans skaufi sé sá minnsti í heiminum, steig hann fram til að safna fyrir lýtaaðgerð til að stækka vininn. Bað hann sérstaklega um aðstoð frá öðrum sem eru einnig með svokölluð míkrótyppi.
Sjá frétt: Eigandi heimsins minnsta skaufa biður um stuðning frá öðrum sem glíma við það sama
Fjáröflunin vakti mikla athygli og var komin vel af stað þegar Robert Dorfman, lýtalæknir í Kaliforníu, hafði samband við TMZ. Dorfman hafði séð viðtalið við Philips og varð svo hrærður að hann hefur ákveðið að bjóða honum ókeypis lýtaaðgerð, ekki nóg með það heldur dýrari aðgerð en Philips var að safna fyrir.
Dorfman sérhæfir sig í aðgerðum sem þessum og fjallaði um þær á Instagram í fyrra:
Vandamál Philips sneri helst að þvagláti ásamt því að glíma við kvíða. Typpið mun vera um sentimetri á lengd og hefur það haft mikil áhrif á samskipti hans við hitt kynið. Hefur hann líkt stærðinni við fingurnögl.
„Ég skil vel hversu erfitt þetta getur verið,“ segir Dorfman við TMZ. „Þetta getur haft mikil áhrif á sjálfstraustið. Ef ég get aðstoðað hann við að líða betur þá býð ég fram mína þjónustu að kostnaðarlausu.“