Hin 23 ára gamla Brooke George á yfir höfði sér dauðarefsingu í Dubai eftir að hún drap 26 ára gamlan Breta. George er samfélagsmiðlastjarna með yfir eina milljón fylgjendur á TikTok, hefur hún verið dugleg við að birta myndbönd af sér að njóta lífsins í Dubai.
George er nú ákærð fyrir að stinga til bana 26 ára gamlan Breta til bana með eldhúshníf. Breska dagblaðið Mirror hefur eftir fjölskyldu hennar að hún hafi drepið hann í sjálfsvörn.
Hún kynnist manninum í gegnum Facebook, hann hafi fengið hana til koma frá Kent á Englandi suður til Dubai með loforði um ljósmyndatöku. Hún fór þangað í vikuheimsókn og „hafi skemmt sér konunglega“. Í seinni heimsókninni hafi hann svo byrjað að beita hana ofbeldi. Þau hafi farið út að borða og svo heim í íbúð þar sem hann hafi ráðist á hana, segir fjölskyldan að „hún hafi gripið eldhúshníf og orðið honum að bana í sjálfsvörn“.
George var á leiðinni úr landi þegar hún var handtekin á flugvellinum. Hún var ákærð fyrir morð og gæti átt von á dauðarefsingu með aftökusveit.
Fjölskyldan segir að henni hafi verið meinað um aðstoð lögmanns. „Hún var látin afklæðast, alveg nakin, fyrir framan fangaverði,“ segir fjölskyldan, fangaverðirnir voru allir karlkyns. „Þetta var mjög niðurlægjandi og hún brotnaði niður þegar hún sagði okkur þetta.“
Móðir hennar, Thereza George, segir í yfirlýsingu: „Sem móðir Brooke þá hef ég miklar áhyggjur af hennar velferð. Ég talaði við dóttur mína og hún er logandi hrædd. Ég trúi því staðfastlega að hún hafi verið að reyna að koma heim vegna þess sem kom fyrir hana.“
Radha Stirling, yfirmaður samtakanna Detained in Dubai, segir samtökin berjast fyrir því að George verði sleppt á meðan rannsókn málsins stendur. „Það verður að koma fram við hana eins og þolanda heimilisofbeldis á meðan þeir rannsaka málið,“ segir hún.
„Síðustu ár höfum við fengið margar ábendingar um konur, þar á meðal samfélagsmiðlastjörnur, fyrirsætur og aðra ferðalanga, sem eru lokkaðar til Dubai með loforði um lúxúslífstíl, launaða vinnu, frí eða ástarsamband, einungis til að neyða þær til að mæta í veislur hjá áhrifavöldum, beita þær kynferðisofbeldi eða líkamlegu ofbeldi.“