Pressan

Flugdólgur lét lífið í flugi Jet2 eftir átök við aðra farþega

Mynd
Hinn látni, Callum Kerr. Mynd: Instagram

Breskur faðir á fertugsaldri, Callum Kerr, lét lífið í kjölfar þess að hann hafði verið bundinn við sæti sitt um borð í flugi Jet2 frá Kýpur til Manchester á Englandi. 

Mirror og fleiri greina frá. 

Atvikið átti sér stað 21. júní. Kerr, sem var keppandi í berhentum hnefaleikum, er sagður hafa látið ófriðlega um borð eftir að hafa drukkið mikið áfengi. Nokkrir farþegar bundu hann niður í sæti sitt. Þegar lögreglumenn komu um borð í vélina í Manchester þá andaði Kerr ekki lengur. 

Hann er nú látinn. Lögreglan segist hafa fengið tilkynningu um meinta líkamsárás um borð í vélinni skömmu eftir miðnætti 22. júní. 

Kerr var veitt hjartahnoð á vettvangi en án árangurs. 

Rannsókn er hafin á tildrögum andláts hans en talsmaður lögreglunnar í Manchester staðfestir að lögreglumenn hafi komið að manninum bundnum í sæti sínu og málið sé í rannsókn. 

Fjölmiðlafulltrúi Jet2 staðfestir að óskað hafi verið eftir neyðarlendingu í flugi LS966 frá Larnaca til Manchester vegna truflunar um borð af völdum farþega. „Við getum staðfest að farið var með farþega á sjúkrahús. Þar sem rannsókn er hafin á atvikinu væri óviðeigandi að tjá sig frekar um það á þessari stundu.“

Sjá nánar hér.