Pressan

Sérfræðingar vara við andlegri heilsu Trump – „Getur endað með hörmungum“

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti. Mynd/Getty

Margir sérfræðingar hafa áhyggjur af andlegu heilbrigði Donald Trump og óttast að þetta geti endað með hörmungum.

Dagbladet skýrir frá þessu og hefur eftir tveimur bandarískum sérfræðingum að Donald Trump sé heimsbyggðinni stórhættulegur.

„Ég hef á tilfinningunni að þetta endi með hörmungum,“ sagði sálfræðingurinn Bandy X. Lee sem hefur kennt við Yale og Harvard háskólana. 2017 ritstýrði hún bókinni „The Dangerous Case of Donald Trump“. Í bókinni eru greinar um meintan andlegan óstöðugleika Trump á fyrra kjörtímabili hans.

Lee sagðist telja að nú á öðru kjörtímabili hans séu merkin um andlegan óstöðugleika hans enn meira áberandi en á fyrra kjörtímabilinu.

„Það eru alvarleg læknisfræðileg teikn á lofti. Margar heimsóknir á Walter Reed sjúkrahúsið þar sem alvarlegar rannsóknir hafa verið gerðar, til dæmis segulómun, sem er ekki hægt að gera í Hvíta húsinu. Þetta er merki um að eitthvað alvarlegt sé að,“ sagði Lee.

Þarna vísaði hún til þess að Trump hefur farið fjórum sinnum á Walter Reed hersjúkrahúsið í rannsóknir síðan hann tók við forsetaembættinu í janúar á síðasta ári. Spurningin er svo auðvitað hvort hann hafi farið í fleiri rannsóknir sem ekki hefur verið skýrt frá. Sérfræðingar hafa einmitt gagnrýnt Trump og hans fólk fyrir skort á gagnsæi varðandi heilsufar hans.

John Gartner, fyrrum prófessor við John Hopkins háskólann, er sammála Lee og segir stöðuna núna vera „ótrúlega hættulega“.

Það er tal forsetans, minni, hegðun og það hvernig hann hreyfir sig sem hefur vakið athygli sérfræðinga. Svo virðist sem hann hafi sífellt minni stjórn á sér og sér orðinn mjög hvatvís.

„Þegar borið er saman hvernig hann var á fyrra kjörtímabili sínu, þá er hann ruglaðri núna, óútreiknanlegri. Hann kallar fólk „svín“ og „heimskt“ og bölvar meira. Hegðun hans er stjórnlausari og ruglaðri. Allt þetta passar við einkenni elliglapa,“ sagði Gartner.