John Cornyn, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins frá Texas, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta vera að stefna flokki sínum í hættu með umdeildum ákvörðunum og kröfu um óskoraðan stuðning flokksmanna.
Hann telur að sú stefna geti leitt til mikils taps repúblikana í þingkosningunum í nóvember og að síðustu tvö ár forsetatíðar Trumps verði þau erfiðustu sem hann eigi eftir að upplifa.
Cornyn lét þessi orð falla í viðtali við The New York Times, tveimur vikum eftir að hann tapaði í prófkjöri flokksins fyrir Ken Paxton, dómsmálaráðherra Texas. Tap Cornyn markar endalok nær aldarfjórðungs langrar setu hans í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Hvernig kemur hann fram við óvini sína?
Trump studdi Paxton opinberlega undir lok kosningabaráttunnar og Cornyn segir stuðning forsetans hafa haft afgerandi áhrif á úrslitin. Hann sagðist hafa orðið fyrir vonbrigðum með framgöngu forsetans.
„Ef vinur kemur svona fram við mann, þá fer maður að velta fyrir sér hvernig hann kemur fram við óvini sína,“ sagði Cornyn og vísaði þar til ummæla Trumps um að þeir yrðu áfram vinir þrátt fyrir ósigurinn.
Cornyn, sem hefur stutt stefnu forsetans í meirihluta atkvæðagreiðslna á ferli sínum, segir að Trump virðist aldrei sáttur nema fá hundrað prósent fylgispekt frá flokksmönnum sínum.
„Það verður aldrei nóg fyrir hann nema algjör undirgefni gagnvart því sem hann vill hverju sinni,“ sagði hann og bætti við að slíkt samræmdist ekki hlutverki öldungadeildarinnar sem eigi að veita framkvæmdavaldinu aðhald.
Ekki í hefndarhug
Þrátt fyrir ósigurinn segist Cornyn ekki vera í hefndarhug. Hann vill áfram að Repúblikanaflokkurinn haldi meirihluta sínum í öldungadeildinni, en óttast að flokkurinn muni tapa fulltrúadeildinni í næstu kosningum.
Að mati Cornyn eru ýmsar ákvarðanir Trumps líklegar til að veikja stöðu flokksins. Hann nefndi sérstaklega stuðning forsetans við Paxton, sem hann telur umdeildan frambjóðanda sem muni gera kosningabaráttu repúblikana bæði erfiðari og kostnaðarsamari í Texas og víðar.
Cornyn telur að Trump muni að lokum sjá eftir stuðningi sínum við Paxton. Að hans mati gætu þingkosningarnar í nóvember orðið repúblikönum dýrar og síðustu tvö ár forsetatíðar Trumps þau erfiðustu. „Ég held að nóvember verði hörmung,“ sagði hann í viðtalinu.
Þótt Cornyn muni ekki styðja Paxton sagðist hann áfram ætla að vinna að málum í öldungadeildinni þar til kjörtímabili hans lýkur eftir sjö mánuði.