Pressan

Fóstruðu 12 ára stúlku í rúmt ár - Fengu svo áfall þegar sannleikurinn kom í ljós

Mynd

Brasilísk fjölskylda taldi sig vera að gera góðverk þegar hún ákvað að taka að sér 12 ára stúlku sem var að koma úr hörmulegum aðstæðum, en í raun hafði fjölskyldan orðið fyrir barðinu á fyrirlitlegum svikum.

Málið hófst árið 2023 þegar sjálfboðaliða í Rio de Janeiro bárust skilaboð á samfélagsmiðlum frá stúlkunni þar sem hún bað um hjálp. Hún sagði að faðir hennar væri að gera hana út í vændi og að hann væri eins að leggja stund á galdra. Stúlkan sagðist hafa strokið að heiman og að eldri kona hefði skotið yfir hana skjólhúsi.

Sjálfboðaliðinn ákvað að bjarga stúlkunni og ferja hana til Nova Iguaco þar sem vinir sjálfboðaliðans ákváðu að taka hana að sér.

„Hún virtist vera einhverfur unglingur sem glímdi við offitu og var barnsleg í tali,“ sagði sjálfboðaliðinn við brasilíska miðla.

Stúlkan þótti nokkuð sérstök en það var afsakað með vísan til þess að hún væri einhverf. Sem dæmi notaði hún snuð, drakk úr pela og gat ekki sofnað nema með sérstakt teppi. Hún fékk líka ítrekað ofsakvíðaköst á nóttunni og varð fljótt fósturforeldrum sínum háð.

Stúlkan þótti þó líta út fyrir að vera nokkuð eldri en 12 ára en hún sagðist hafa verið sett á hormónameðferð sem barn sem hefði flýtt fyrir öldrun húðarinnar. Eins hefði ofbeldið sem hún þurfti að þola frá föður sínum haft sambærileg áhrif.

Fósturforeldrarnir tóku miklu ástfóstri við hana og var því verulega brugðið þegar það kom á daginn, 14 mánuðum síðar, að stúlkan var í raun 37 ára gamall svikahrappur sem hafði spilað þennan leik ítrekað á ólíkum stöðum í Brasilíu.

Rétt nafn konunnar er Amanda Maria Souza de Oliveira og hefur hún nú verið handtekin fyrir svikin. Hún situr nú í varðhaldi en verjandi hennar vill meina að hún glími við andleg veikindi sem geri það að verkum að hún sé ekki sakhæf.