
35 ára gömul kona í Suffolk-sýslu í New York ríki, Keyonna Waddell, hefur verið dæmd í 18 ára fangelsi fyrir að kasta logandi dínamitstöng í kærasta sinn er hann lá sofandi í rúminu.
Atvikið átti sér stað 22. mars árið 2024. Waddell og kærasti hennar lentu í rifrildi og endaði það með því að bæði fóru út úr íbúðinni sem þau bjuggu í. Síðar um kvöldið kom kærastinn aftur heim og lagðist til svefns. Hann vaknaði upp við hviss-hljóð og sá eitthvað sem líktist stöng af dínamiti. Hann reyndi að fleygja stönginni út um glugga en hún sprakk í hendi hans.
Brotaþolinn hljóp út úr húsinu og sá Waddell fara í burtu.
Það sem eftir var af hendi brotaþolans þurfti að nema í burtu skurðaðgerð.
Héraðssaksóknarinn í Suffolk-sýslu, Raymond A. Tierney, segir þetta mál vera dæmi um hvernig heimilisofbeldi getur stigmagnast og orðið lífshættulegt.
Sjá nánar um málið hér.