Það er aldrei gaman eða gott að fá hálsbólgu en því miður verðum við mörg fyrir því vetur hvern að glíma við slíka óværu. Flestir þekkja eflaust húsráð á borð við að drekka te með hunangi, sítrónuvatn eða bara að sjúga hálstöflur. Þetta hjálpar yfirleitt við að milda einkennin en vissir þú að það eru líka til matvæli sem er skynsamlegt að forðast þegar maður er með hálsbólgu?
Í umfjöllun Lifestyle ao Minuto kemur fram að eftirfarandi fæðutegundir sé rétt að forðast ef maður er með hálsbólgu.
Súr matvæli – Sýran getur ert sýktan háls enn frekar. Veldu frekar milda matar- og drykkjarvörur. Til dæmis mjúka ávexti á borð við banana eða mangó.
Sterkur matur og matur með chili – Það þarf ekki nema smávegis af sterkum mat og chili getur gert hálsbólguna verri.
Stökk matvæli – Það er best að forðast þurr og stökk matvæli því þau rispa og pirra hálsinn enn frekar. Þau virka nánast eins og sandpappír á hann.
Mjög heitur matur og drykkir – Heitur tebolli eða súpa getur linað sársaukann í smá stund en ef þetta er of heitt, þá getur það brennt hálsinn og gert einkennin verri. Drekktu frekar eitthvað volgt.
Áfengi – Alkóhól drepur ekki bakteríurnar sem valda hálsbólgunni. Þvert á móti getur það pirrað hálsinn enn frekar, veikt ónæmiskerfið og valdið ofþornun.
Mjólkurvörur – Kaldar mjólkurvörur geta í fyrstu virst lina einkennin en hjá sumum geta þær gert slímið þykkara og gert okkur erfiðara fyrir við að hreinsa hálsinn.
Koffíndrykkir – Koffín getur haft neikvæð áhrif á svefninn en ónæmiskerfið þarf á honum að halda til að berjast gegn sýkingum. Það er því betra að drekka jurtate.