Pressan

Það getur verið hættulegt að hafa vatnsflösku í bílnum

Mynd
Söltu vatni er blandað við drykkjarvatnið. Mynd:Getty

Það virðist svo sem ekkert merkilegt eða hættulegt við að láta vatnsflösku vera í bílnum, sérstaklega á sumrin þegar þorsti sækir á í heitu veðri og það er mikilvægara en ella að drekka mikið.

En eftir því sem segir í grein á vefnum doctissimo, þá getur verið hættulegt fyrir heilsu fólks og öryggi bílsins að vera með vatnsflösku og af þeim sökum sé best að sleppa því.

Óvænt eldhætta

Það kemur væntanlega flestum á óvart að eldhætta getur fylgt því að vera með vatnsflösku í bíl. Þegar sólin skín á flöskuna, getur hún virkað eins og linsa sem þjappar ljósi og hita saman á ákveðinn punkt. Þetta getur nægt til að kveikja í eldfimum efnum, til dæmis sætum. Slíkir eldsvoðar hafa komið upp í Bandaríkjunum.

Eiturefni

Hitinn inn í bíl getur farið yfir 50 gráður en það getur orðið til þess að hættulegar sameindir úr plastinu berist í vatnið í flöskunni. Eitt þeirra er bisphenol A en þetta hormónatruflandi efni er talið vera krabbameinsvaldandi.

Bakteríur

Kyrrt vatn í flösku, sem lendir í hita, verður sannkölluð gróðrarstía fyrir bakteríur og sveppi. Meira að segja þótt flaskan hafi aldrei verið opnuð, ýtir hiti undir dreifingu örvera sem geta vatnið ódrykkjarhæft og það getur valdið meltingartruflunum eða veikt ónæmiskerfið.

Ódrekkandi vatn þrátt fyrir innsiglaða flösku

Þvert á það sem margir halda, þá er innsigluð vatnsflaska ekki trygging fyrir því að vatnið sé í toppstandi. Hiti virkar beint á plastið og vatnið og það gerir vatnið allt annað en gott til neyslu þrátt fyrir að það líti út fyrir að vera tært og hreint.