fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Þarmabakteríuflóran verður fyrir áhrifum frá öðrum einstaklingum

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 14:30

Þessir svartfuglar voru ekki viðfangsefnið í rannsókninni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn við University of East Anglia rannsökuðu hvaða áhrif félagsleg tengsl hafa á starfsemi líkamans.

Rannsóknin, sem hefur verið birt í vísindaritinu Molecular Ecology, fór fram á lítilli eyju í Kyrrahafi þar sem ákveðin fuglategund lifir einangruð frá umheiminum.

Vísindamennirnir gátu fylgst með fuglunum allt líf þeirra og aflað gagna um hegðun þeirra og heilsufar.

Örverulífið í þörmunum byggist á bakteríum sem eru mikilvægar fyrir meltinguna og ónæmiskerfið.

Í rannsókninni beindu vísindamennirnir sjónum sínum aðallega að bakteríum sem geta ekki lifað utan líkamans. Til að þessar bakteríur geti borist á milli einstaklinga þurfa þeir að vera mjög nálægt hver öðrum.

Rannsóknin sýndi fram á að þarmabakteríuflóra fugla, sem voru mikið saman, var mjög svipuð.

Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á að örveruflóra fólks sem býr saman er oft svipuð.

Nýja rannsóknin bendir til að það sé ekki eingöngu vegna umhverfisáhrifa á borð við mataræði og húsnæði. Félagsleg samskipti virðast skipta miklu máli. Náin samvera og dagleg samskipti geta haft áhrif á jafnvægið í líkamanum eftir því sem segir í umfjöllun SciTechDaily.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel