fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Óvæntar niðurstöður um hvaða æfingar bæta svefninn mest

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 13:30

Jóga toppar listann.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umfangsmikil yfirferð á 30 alþjóðlegum rannsóknum skilaði óvæntum niðurstöðum varðandi hvaða hreyfing bætir svefn fólks mest.

Sciencealert skýrir frá þessu og segir að yfirferðin hafði náð til 30 rannsókna sem rúmlega 2.500 manns tóku þátt. Fólkið kom frá öllum heimshlutum.

Niðurstöðurnar benda til að jóga, með mikilli ákefð, í stuttum lotum (undir hálfri klukkustund) tvisvar í viku hafi bestu áhrifin á nætursvefninn.

Þessi niðurstaða kemur mörgum á óvart því jóga er oftast tengt við hægar og langvarandi æfingar.

Göngutúrar reyndust hafa næst bestu áhrifin og þar á eftir komu styrktaræfingar.

Margir þátttakendanna fundu fyrir bættum svefni eftir átta til tíu vikna æfingar og styður það við hugmyndir um að líkaminn bregðist hratt við reglulegri líkamsrækt/hreyfingu er ryþmanum er viðhaldið.

Niðurstöðurnar eru ólíkar þeim sem fyrri greining skilaði en þær bentu til að þrekþjálfun hefði bestu áhrifin á svefngæðin.

Líkleg skýring á miklum áhrifum jóga er að það nær yfir breitt svið. Sum form þess reyna á púlsinn en önnur beinast að styrk eða andlegu hliðinni.

Þetta gerir að verkum að það er erfitt að staðsetja jóga í hefðbundnum æfingaflokkum og það getur verið ástæðan fyrir því að áhrifin mælast mismunandi í hinum ýmsu rannsóknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel