
ScienceDaily segir að miðað við rannsókn, sem var birt í BMJ Nutrition, Prevention & Health, geti kolsýrt vatn haft smávægileg áhrif á hvernig líkaminn tekst á við sykur.
Þegar líkaminn tekur kolsýruna upp, getur það breytt blóðinu örlítið og hugsanlega gert líkamann aðeins betri í að nota glúkósa. En áhrifin eru ekki mikil. Það magn glúkósa, sem verður hugsanlega fyrir áhrifum, er svo lítið að það getur varla haft nein áhrif á þyngdartap.
Akira Takahashi, vísindamaður, segir að þyngdarstjórn byggist á að hafa stjórn á mataræðinu og að hreyfa sig. Það að drekka sódavatn breyti þessu ekki eitt og sér.
Vísindamenn segja að frekari rannsókna sé þörf á þessu sviði og að sódavatn geti verið hluti af heilbrigðum lífsstíl en sé ekki leiðin til þyngdartaps.