fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Náðu stjórn á frystinum – Þessu skaltu henda

Pressan
Sunnudaginn 24. maí 2026 15:00

Hefur þú stjórn á frystinum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þú tekur eflaust til í ísskápnum öðru hvoru og líklega er ekki vanþörf á því. En hjá mörgum gleymist frystirinn alveg. Hann getur fljótt orðið algjör ráðgáta. Hann er kaldur, dimmur og erfitt að hafa yfirsýn yfir hvað er í honum.

Það er mikilvægt að fara reglulega yfir hvað er í honum til að viðhalda einhverju skipulagi og um leið koma í veg fyrir matarsóun.

Ef þú ert ekki viss um hvar á að byrja þá segir Real Simple að eftirfarandi eigi að henda strax.

Dularfullir hlutir – Whitney Cardosi, næringarfræðingur og höfundur matreiðslubóka, segir að henda eigi dularfullum, óþekktum hlutum í frystinum beint í ruslið. „Ef það er enginn miði eða þetta er með frostskaða, þá ráðlegg ég fólki að henda því,“ sagði hún í samtali við Real Simple.

Hún sagði að góð þumalfingurregla sé að tilbúnir afgangar og tilbúnir réttir séu notaðir innan þriggja mánaða. Hrátt kjöt og grænmeti geymist yfirleitt í sex til tólf mánuði ef það er geymt á réttan hátt.

Hún ráðleggur fólki að nota túss til að merkja og dagsetja það sem er sett í frystinn. Með því sé auðveldara að finna það tryggja að ekkert gleymist.

Útrunninn matur

Það virðist liggja í augum uppi að það eigi að henda útrunnum mat úr ísskápnum en margir eru með löngu útrunninn mat í frystinum. Shantae Duckworth, sérfræðingur á þessu sviði, sagði að þetta þýði að það eigi að henda matnum strax.

Næstum tóm ísbox

Næstum tóm ísbox enda oft í frystinum og daga uppi. Þau gera ekkert annað en að taka pláss sem væri hægt að nota mun skynsamlegar.

Stórinnkaup

Ef þú hefur keypt mat í stórum umbúðum, til dæmis grænmetisblöndur, þá er hægt að nota þær til að prófa nýjar uppskriftir ef það er ekki komið fram yfir síðasta neysludag. En ef síðasti neysludagur er dagur í fortíðinni, þá er rétt að henda matnum.

Gömul ílát

Geymsluílátin hafa ákveðinn endingartíma, eins og maturinn. Ef þú tekur eftir því að ílátið er farið að springa eða er orðið skakkt, þá heldur það matnum líklega ekki ferskum. Hentu því og keyptu nýtt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár
Pressan
Í gær

Þessar matvörur ætti fólk að borða daglega að sögn sérfræðinga

Þessar matvörur ætti fólk að borða daglega að sögn sérfræðinga
Pressan
Í gær

Færðu sokkaför á fæturna? – Þetta er líkaminn að reyna að segja þér

Færðu sokkaför á fæturna? – Þetta er líkaminn að reyna að segja þér
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996
Pressan
Fyrir 4 dögum

Nýtt netsvindl breiðist hratt út: Svona virkar „stafræn handtaka“

Nýtt netsvindl breiðist hratt út: Svona virkar „stafræn handtaka“