Pressan

Dularfullur fundur í grískum helli

Mynd
Drónabáturinn kominn á flot.

Grískir sjómenn, sem voru að veiðum við eyjuna Lefkada á fimmtudag í síðustu viku, fundu dularfullan hlut á botni hellisins. Þar lá dularfullur drónabátum. Hann var fullhlaðinn sprengiefnum.

Express skýrir frá þessu og segir að um úkraínskan drónabát sé að ræða. Sprengiefnasérfræðingar hersins voru sendir á vettvang og gerðu þeir sprengiefnið óvirkt áður en drónabáturinn var fluttur í gríska herstöð til skoðunar.

Drónabáturinn er af gerðinni Magura V3. Þeir eru notaðir til njósna og árása. Drægi þeirra er allt að 500 sjómílur og þeir ná allt að 80 km hraða á klukkustund.

Grísk yfirvöld rannsaka nú hvernig stendur á því að drónabáturinn endaði í grískum helli og hvert för hans var heitið.