Pressan

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir að bíta nemanda

Mynd

Það sem byrjaði sem leikur nemanda og kennara þróaðist á versta veg og nýlega var kennarinn dæmdur í fangelsi fyrir að bíta nemandann.

Það var í nóvember 2023 sem leikur nemanda og kennara í Karise Efterskole í Danmörku fór úr böndunum.

TV2 segir að þetta hafi átt sér stað að kvöldi þegar ró átti að vera kominn á í heimavist skólans. Kennarinn bað þá nemandann um að afhenda sér farsímann en það vildi nemandinn ekki gera.

Í fyrstu var þetta eiginlega leikur þeirra á milli en endaði með handalögmálum sem enduðu með að kennarinn lagðist ofan á nemandann, tók hann hálstaki og beit hann í fótlegginn.

Kennarinn, sem er 58 ára kona, var dæmd í sjö daga skilorðsbundið fangelsi. Hún starfar ekki lengur í skólanum.