fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Pressan

Franskur sjóliði kom upp um staðsetningu flugmóðurskips þegar hann notaði líkamsræktarapp

Pressan
Sunnudaginn 29. mars 2026 07:30

Charles de Gaulle flugmóðurskipið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Franskur sjóliði kom upp um staðsetningu hins kjarnorkuknúna flugmóðurskips Charles de Gaulle þegar hann notaði líkamsræktarappið Strava. Hann notaði appið til að skrá hlaupatúr sinn á dekki skipsins.

Skipið var þá á siglingu um austanvert Miðjarðarhaf  í tengslum við átökin í Miðausturlöndum.

Sjóliðinn notaði snjallúrið sitt til að mæla 5 km hlaupatúr sinn, sem tók 35 mínútur, og birti á Strava að sögn Le Monde.

Blaðið staðfesti þetta með því að skoða gervihnattarmyndir, sem voru teknar skömmu eftir að sjóliðinn lauk æfingu sinni, og sást skipið þá norðvestan við Kýpur.

Yfirstjórn franska hersins sagði að það væri brot á reglum að nota app á borð við þetta þegar hermenn eru við skyldustörf.

Le Monde segir að annar sjóliði, á öðru frönsku herskipi, hafi einnig komið upp um staðsetningu þess með notkun líkamsræktarapps.

Charles de Gaulle flugmóðurskipið er flaggskip franska flotans og eina kjarnorkuknúna flugmóðurskipið í eigu annarra en Bandaríkjamanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hvað er hvítasunna?
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi

Ef þú færð á fætur fyrir klukkan 7 alla daga, þá vinnur heilinn þinn kannski öðruvísi
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju

Hún átti kvöldvaktina á kaffibarnum – Síðasti viðskiptavinurinn hafði illt í hyggju
Pressan
Í gær

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?

Hvort er betra að geyma mat í plast- eða gleríláti?
Pressan
Í gær

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár
Pressan
Fyrir 3 dögum

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans