fbpx
Þriðjudagur 10.febrúar 2026
Pressan

Maduro og eiginkona hans ákærð í New York – „Þau munu senn mæta fullum ofsa bandaríska réttlætisins“

Pressan
Laugardaginn 3. janúar 2026 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nicolás Maduro, forseti Venesúela, og eiginkona hans hafa verið ákærð í New York fyrir fíkniefnahryðjuverk, fíkniefnainnflutning og fyrir að hafa í vörslum sínum vopn sem mun hafa verið ætlað að beita gegn Bandaríkjunum. Frá þessu greinir dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Pam Bondi, á samfélagsmiðlum.

„Þau munu senn mæta fullum ofsa bandaríska réttlætisins á bandarískri grundu fyrir bandarískum dómstólum,“ sagði ráðherrann sem þakkar Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir að hafa hugrekkið til að draga Maduro til ábyrgðar fyrir glæpi hans gegn bandarísku þjóðinni.

Alþjóðasamfélagið stendur á öndinni eftir aðgerðir Bandaríkjahers í morgun, en herinn gerði ekki bara loftárásir á Venesúela heldur lét sérsveit sína handsama Maduro. Að sögn Donalds Trump hefur Maduro nú verið flogið frá Venesúela. Bandarísk stjórnvöld segja að Maduro hafi verið handtekinn. Aðrir vilja meina að honum hafi verið rænt, enda hafi Bandaríkin ekki lögsöguna til að handtaka leiðtoga fullvalda ríkis á hans eigin heimavelli. Stjórnvöld í Venesúela hafa kallað eftir svörum frá Bandaríkjunum um hvort Maduro hafi aðeins verið rænt, eða hvort hann hafi verið myrtur.

Yfirmaður utanríkismála Evrópusambandsins, Kaja Kallas, hefur kallað til stillingar. Evrópusambandið hafi ítrekað lýst því yfir að Maduro sé ekki réttkjörinn leiðtogi og kallað eftir friðsömum valdaskiptum. Hins vegar þurfi að fylgja grundvallarreglum alþjóðsamfélagsins.

Skiptar skoðanir eru á aðgerðunum í Bandaríkjunum. Í könnun sem CBS lét gera í nóvember á síðasta ári sögðust 70 prósent svarenda vera mótfallin hernaðaraðgerðum gegn Venesúela og aðeins 13 prósent svarenda töldu að Bandaríkjunum stæði ógn af þessari nágrannaþjóð sinni.

Ekki er vitað hvað tekur nú við hjá Venesúela en talið er ólíklegt að Maduro muni segja sig frá embætti án þess að fá nokkuð í staðinn. Al Jazeera segir sérfræðinga óttast að borgarastyrjöld sé fram undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gefa milljónir tonna af kartöflum – Aðrir kartöflubændur eru ósáttir

Gefa milljónir tonna af kartöflum – Aðrir kartöflubændur eru ósáttir
Pressan
Í gær

Eiginkona Chomskys svarar fyrir Epstein-skjölin og útskýrir vinskap þeirra- „Þetta voru alvarleg mistök og dómgreindarbrestur“

Eiginkona Chomskys svarar fyrir Epstein-skjölin og útskýrir vinskap þeirra- „Þetta voru alvarleg mistök og dómgreindarbrestur“
Pressan
Í gær

Frakkar afnema lög sem kveða á um að það sé skylda fólks í hjónabandi að stunda kynlíf

Frakkar afnema lög sem kveða á um að það sé skylda fólks í hjónabandi að stunda kynlíf
Pressan
Í gær

Segja svefnskort geta skaðað hjartað meira en reykingar

Segja svefnskort geta skaðað hjartað meira en reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Greindist fyrst á níræðisaldri með „keltnesku bölvunina“ sem margir Íslendingar þekkja – „Þvílíkur léttir“

Greindist fyrst á níræðisaldri með „keltnesku bölvunina“ sem margir Íslendingar þekkja – „Þvílíkur léttir“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn vara við tveimur veirum sem gætu valdið næsta heimsfaraldri

Vísindamenn vara við tveimur veirum sem gætu valdið næsta heimsfaraldri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi